Blog Layout

Þrennu-Framtíðarvika
Þrennu-Framtíðarvika
Framtíðarstjórn • sep. 12, 2021

Framtíðin

Framtíðin, stofnuð 1883, er eitt tveggja nemendafélaga MR og elsta nemendafélag MR. Í þessari viku (13. - 17. sept) gefst þér kostur á að gerast meðlimur í félaginu og 138 ára löngu sögu þess.

En hvers vegna átt þú að skrá þig í Framtíðina?

Meðlimir Framtíðarinnar njóta alls kyns fríðinda og geta tekið þátt í alls konar athöfnum og viðburðum innan skólans.

Tvö böll

Framtíðin sér um að halda tvö böll eftir áramót — árshátíð Framtíðarinnar í febrúar og miðannaball í mars. Framtíðarmeðlimir eiga kost á að kaupa miða á innanfélagsverði á meðan þeir sem eru ekki skráðir í Framtíðina þurfa að borga utanfélagsgjöld, sem eru alment hærri, og fá meðlim til þess að bjóða sér á ballið.


Keppnir

Framtíðin heldur utan um alls kyns keppnir.

- Þátttaka í MR/ví keppnum

Mannlegt tafl

Kappát

Skotahlaup

Körfubolti

Fótbolti

og margt margt fleira

- MORFÍs

- Ratatoskur - innanskóla spurningakeppni svipuð Gettu Betur

- Sólbjartur - innanskóla ræðukeppni svipuð MORFÍs

- Skákmót á vegum Skákfélagsins

- Golfmót á vegum Golffélagsins


Skrallpokarnir

Skrallfélagið hefur unnið hörðum höndum í allt sumar að safna saman í gjafapoka fyrir meðlimi Framtíðarinnar. Í þessum gjafabokum má finna nammi, heilsuvörur, drykki og margt fleira.


Afslættir

Framtíðarmeðlimir fá einnig nóg af afsláttum til að nýta. Skrallfélagið vann einnig að söfnun megnis þeirra. Afslættina má alla sjá undir síðunni Afslættir. Framtíðarmeðlimir geta einnig fundið þá í félaga skírteininu sínu í Aur-veski.


Ofurbekkir

Þeir bekkir þar sem allir nemendur skrá sig í Framtíðina kallast ofurbekkir og hljóta pítsuveislu í verðlaun. PIPIPIPÍTSAAAAA. Endilega notist við hópþrýsting og einelti ef þið viljið pítsu, auk hinna margra annarra fríðinda sem skráning í Framtíðina felur í sér.


AirPods Pro

Einn heppin meðlimur Framtíðarinnar gæti unnið sett af AirPods Pro.

Til þess að taka þátt í gjafaleiknum skaltu skrá þig í Framtíðina.

Eftir Agnar Már Másson 01 Feb, 2022
Safnanir
Eftir Agnar Már Másson 18 Jan, 2022
Heil og sæl og gleðilega hinseginviku. Í augnablikinu á félagslífið undir þungt högg að sækja en samt sem áður hefur Catamitus, hinseginfélag Menntaskólans í Reykjavík, tekist að skipuleggja hina dýrindisviku. Félagið Catamitus skipa Sædís Ósk Einarsdóttir (formaður), Gísli Garðar, Gabriella Sif Bjarnadóttir, Embla Waage, Viktoria Lilja Magnúsdóttir og Hildur Ósk Sævarsdóttir.  Dagskrána og fleiri upplýsingar um viðburðinn má finna hér. Hér fyrir neðan er umfjöllun um hinsegin rými í MR á 19. öld, skrifuð í tilefni hinseginvikunnar!
Nemendur tollera Neil Perry, Dead Poets Society
Eftir Frúardagur 05 Nov, 2021
Í ár mun leikfélagið Frúardagur setja upp sýninguna Dead Poets Society sem er byggð á kvikmynd að sama nafni. Sagan gerist árið 1959 og fjallar um nokkra nemendur í erfiðasta undirbúningsskóla á landinu — Welton-skólanum. Framtíð nemendanna hefur hefur öll ákveðin af foreldrum þeirra og fá þeir fátt að segja um hvert líf þeirra stefnir. Einn dag fá þau nýjan móðurmálskennara sem virðist vera algjör furðufugl en af honum læra þau að elta drauma sína og njóta lífsins til hins fyllsta.
Eftir Agnar Már Másson 05 Oct, 2021
MR/ví dagurinn var haldinn þann 1. október seinastliðinn en þar kepptust nemendur Menntaskólans í Reykjavík gegn gungum verslunarskóla Íslands í ýmsum greinum. Keppt var í reipitogi, kappáti, skæri blað stein, skyrglímu, svokölluðu skotahlaupi og um kvöldið var stærsta keppnin haldin - ræðukeppnin.
Fleiri færslur
Share by:
Framtíðin - Málfunda- og nemendafélag Menntaskólans í Reykjavík